Í ársreikningum Arion banka fyrir árið 2011 er tekið tillit til dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar 2012 varðandi endurreikning gengistryggðra lána. Áætlað er að kostnaður Arion-bankasamstæðunnar vegna vaxtaendurútreiknings þeirra lána sem falla undir ákvæði dómsins sé um 13,8 milljarðar króna.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir í tilkynningu um afkomu Arion banka, en bankinn hagnaðist um 11,1 milljarð króna á síðasta ári:
„Uppgjör bankans fyrir árið 2011 er ásættanlegt, sérstaklega í ljósi áhrifa af nýföllnum dómi Hæstaréttar, en dómurinn hefur veruleg áhrif á afkomu bankans. Dómur sem þessi sýnir vel hversu mikilvægt það er að við höfum byggt upp fjárhagslegan styrk og getum tekið á okkur fjárhagslegt högg. Það er einfaldlega svo að sterkir bankar eru efnahagslífinu öllu nauðsynlegir, því höfum við allt frá stofnun lagt höfuðáherslu á að efla bankann. Byggja upp góðan banka þar sem starfar fólk sem gerir sitt besta. Þetta hefur tekist.
Að vissu leyti má segja að á árinu 2011 hafi verið stigin lokaskrefin í uppbyggingu bankans. Við styrktum innviðina og stjórnarhættina, hagræddum í starfseminni, breyttum skipulagi og treystum efnahaginn. En við gáfum einnig tóninn varðandi framtíðaráherslur okkar hvað varðar þjónustu við viðskiptavini okkar þegar við komum fram með nýja þjónustuþætti eins og óverðtryggð íbúðalán. Við höfum einsett okkur að byggja á þessum grunni og sýna frumkvæði er kemur að góðri og fjölbreyttri fjármálaþjónustu.“
— Lesa nánar